'Island/Ameríka
Myndaalbúm.
Aðrir bloggarar
Veðrið í Pearl Harbor.
30.01.2010 04:27:35 / zz-top

því getur lífið verið svona ósanngjarn ?

Ég er nú ekki vön að kvarta eða kveina mikið, bara stundum svona þegar ég þarf að pústa mikið og í dag er sá dagur.

Ég er búin að vera skoða möguleikana okkar í barneignum og þeir hreinlega líta ekkert of vel út.  Það þarf greinilega eitthvað mikið að gerast, sérstaklega þar sem ég er ekki fræg og rík og get keypt þau börn sem mig langar í.

Að ættleiða eitt nýfætt og fá það í hendurnar á fyrstu 2 dögum eða jafn vel sama dag kostar bara einhverstaðar á bilinu 30-40.000 þúsund dollara.  Þeir lána líka en ég hef ekki fengið upplýsingar um hvernig það fer allt saman fram hjá þeim.

Svo er ég búin að finna stað sem er tilbúin til að lána mér 20.350 dollara til að fara í ivf, fjósemisaðgerð á egg og sæði og uppsetnning.  Og er í því 3 tilraunir og 3 frostnar, en til að borga það til baka á 2 árum þarf ég að borga um 980 og eitthvað dollara á mánuði, eða á 8 árum, yrði það 383 dollarar á mánuði og þetta eru bara tölur ef ég fæ þetta á 10 % vextum.  Og hvað er svo gaman að borga af barninu sínu í hverjum mánuði.  Ég hreinlega sé ekki fært um að borga þessa upphæð þar sem ég er með mínar skuldbindingar og er að reyna að standast við.  Ég meina hver hefur efni á þessu??og svo er ætlast til að maður borgi famhaldskóla líka sem kostar álíka.  Sorry elskan mamma getur ekki borgað fyrir þig skólan, því ég er en að borga af þér.

I focking hate this.

» 3 hafa sagt sína skoðun

20.01.2010 05:44:25 / zz-top

ein færsla í mánuði.

er ekki komin tími á að ég skrifi eitthvað??? þetta er farið að líta út eins og ein færsla í mánuði, eins og mitt daglega líf er, ég hringi einu sinni í mánuði í vini og vandamenn.  Það er að segja ef fólk er heppið.  Það er eitthvað svo mikið að gera hjá mér??? ég bara veit ekki alveg hvað :-) hahhehe.

En alla vega. 
Skólinn er byrjaður aftur og er ég í fyrsta skiptið í nokkrum tímum online, og er ég ekki alveg viss um hvernig það mun allt fara?? kemur í ljós síðar og ég læt ykkur vita.  Vinnan er en á sínum sama stað, ég vinn með alveg helling af letingjum sem hugsa bara um sjálfan sig og það virðist vera eins og að yfirmennirnir gera ekki neitt í því, þó svo að fólk komi allt of seint á hverjum degi, gerir ekki það sem það á að gera og svoleiðis.  En það er víst ekki minn höfuðverkur og á ég ekki að láta þetta neitt á mig fá, því ekki er ég nú yfirmaður.

Sit ég hérna og er að horfa á idolið og er að velta lífinu fyrir mér.  Ég hef ákveðið að fara ekki aftur í iui ( uppsetning á sæði ) því ég segi bara eins og er, hver er munurinn á að gera þetta heima hjá sér, eða með svona turkey baste, það er alla vega skemmtilegra að gera þetta heima hjá sér.  Núna er bara að ákveða hvað er gert næst?? fer ég í að fá lán til að gera nokkrar tilraunir í ivf eða sjá hvort ég geti fundið lán fyrir ættleiðingu??  ég er alla vega búin að finna stað sem lánar fyrir ivf upp að 6 skiptum, og ef ekki barn, þá færðu upp að 75 % borgað til baka.

Nú þar sem blessuð talvan mín er alveg að gefa sig, sleppir hinum ýmsu stöfum, og tekur sinn tíma til að kveikja á sér, fór eiginmaðurinn og keypti nýja borðtölvu, og núna get ég gert mína heimvinnu án þess að copy paste þegar ég er búin að gera hana í íslensku wordi og svo setja allt í e-mailið og spell check og vandamál. 

Hvernig fer ég að ?? ég get pant vinna í lotto til að geta borgað fyrir ættleiðinu, eða ivf.  Góður guð.  Ég meina það eru yfir hundrað börn sem voru á munaðarlausarhæli í Haiti sem komu til ameríku, sem þurfa á einhverjum að halda sem vill elska þau.  Sum eru þegar til fólks sem er búið að bíða í all að 3 ár eftir þeim.  Hvað verður  um öll hin?? og hvað svo með börninn sem misstu allt í skjálftanum sjálfum núna??

Ég held áfram að brosa og lifa lífinu lifandi.
Elska ykkur öll, og sakna.

» 0 hafa sagt sína skoðun

27.12.2009 20:43:51 / zz-top

ýmislegt.

Það helsta í fréttum.

Jólinn eru komin með öllu því sem tilheyrir. 
En alltaf mun mér finnast skrítið að hafa ekki hvít jól eða svona grá eins og á íslandi stundum.  Ég meina hvað er eðlilegt að geta farið á ströndina á aðfangadag.  Og svo eru jólinn hérna á Hawaii eitthvað svo ekki svona persónuleg eins og heima.  Hérna eru partý út um allt þann 24 des, fólk dettur í það og gerir það sem það gerir best í því ástandi.  Og svo fer jóladagurinn í þynku og gubbu, enginn klæðir sig upp og fer í sitt fínasta púst.  Og að vakna upp og opna jólapakka þá er en þá furðulegra.  Ekki það að ég ætli mér að kvarta mikið yfir þessu, því ég og mín fjölskylda höfðum það gott, og ekki í þynku og svoleiðis heitum.  Og svo höfðu það einhver miklu verra en við, það er alveg öruggt.

ÉG fékk alla vega að hitta litlu dúllurnar mínar online, og var það alveg yndislegt.  Hef ekki séð þau í næstum því 2 ár núna í feb coming up.

Uppsetningin á sæðinu gekk ekki.  Og síðan þá eru 2 hringir búnir og var ekkert gert þá, því það var engin tími, engir læknar eða of fáir.  Mér finnst alltaf svo skrítið þegar það er hægt að segja við okkur  ( fólk eins og mig komin á þennan aldur ) þú verður bara að bíða þangað til í næsta hring.  Og hvað svo þegar næsti hringur er komin og ekkert er gert þá líka, og fá aftur þú verður bara að bíða.  Ég meina því lengra sem ég bíð, því minni líkur eru á að ég verði ólétt, eða hvað?
En ég fann stað hérna í usa sem býður upp á lán fyrir IVF upp að 6 skipti, og þeir lofa barni eða peninga til baka.  Ég sendi þeim smá e-mail til að sjá hvort þeir hefðu einhvern læknir hérna á sínum snærum sem er í þessu prógrammi hjá þeim, og ég á að hringa til baka.  En núna situr það í mér er ég tilbúin til að borga 40.000 þúsund á mánuði í næstu 5 ár??  þetta situr svolítið í mér.  Því þetta eru miklir peningar.  Ég meina hvað gerist ef ég get ekki borgað??  koma þeir og taka af þér barnið?? veit ekki, það eru miklar pælingar í gangi.

Siglinginn okkar var alveg yndilseg.  Vika í sól og blíðu, engar áhyggjur hvað maður þurfti að klæða sig í, eða hvað átti að borða eða drekka og engar áhyggjur af húsverkum og svoleiðis.  Alveg frábært.  Ég fitnaði um nokkur kíló en alveg þess virði, ég verð bara að taka betur á því í ræktinni á næsta ári. 

Skólinn gekk vel í þessum áfanga.  Fékk A og C og var ég alveg sátt við það, þó svo að það sé alltaf hægt að gera betur, en ég ætla ekkert að berja sjálfan mig fyrir því.  Búin að velja 2 tíma sem ég byrja í jan, annar er þó online og ekki veit ég alveg hvernig það verður??

En alla vega, ég er hérna en þá, þó svo að helmingurinn af heiminum er löngu hættur að blogga eða lesa.  Og er farin að fésast.  Ég get gert bæði, og létt á mínu litla hjarta í leiðinni.

Guð blessi ykkur öll.

» 3 hafa sagt sína skoðun

11.12.2009 01:22:20 / zz-top

alveg frábær.....

Husband of the year awards



The 
honorable mention goes to: 

The  United Kingdom
 



 




followed closely by...
 



The   United States of America
 




 



and then...
 
Poland
 




 



but   3rd Place must go to...
; FONT-SIZE: 10pt"> 


Greece
 




 




it was very very close but the runner up prize
 
was awarded to....
 






Serbia
 



 




but the winner of the
 husband/partner of the  !year is. 



Ireland.

 

Ya gotta love the Irish. 

The Irish are true romantics.look, he's even
 

holding her hand...
 












Woman has
 Man  in it; 

Mrs. has
 Mr. in it; 

Female has
 Male  in it; 

She has 
He  in it; 

Madam has 
Adam in it; 

Okay, Okay, it all makes sense now...
 

I never looked at it this way before:
 

Ever notice how all of women's problems start with
 MEN? 

MEN
tal illness

MEN
strual cramps 

MEN
tal breakdown 

MEN
opause 

GUY
necologist 

AND
 

When we have REAL trouble, it's a..
 HISterectomy. 


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.11.2009 21:40:17 / zz-top

Happy thanksgiving.

Ég er þakklát fyrir fjölskyldu mína, eiginmann, hunda, vini, heilsu, heimili, vinnu, útlit ;) og svo margt fleira. 
Það eru margir sem hafa viklu verra en ég.  Guð gefi sér tíma til að hjálpa þeim.

2 vikur eru liðnar og einhverjir dagar, og ekki var heppninn með okkur í þetta skiptið.  Ekki að ég hafi gert mér miklar vonir.  Því ég hef heyrt og lesið svo margar sögur um að þetta takist ekki í fyrstaskiptið og ekki annað, og stundum ekki þriðja né það fjórða.  Þannig að vonbrigðin voru ekki mikil, en voru þó einhver.  'Oréttlátt.  Er það sem mér finnst.  Ég bið og ég tala við almættið, en það heyrir ekki bæn mína.  Það verður ekkert um hormóna í þessum hring, því það er skortur á læknum.  Þannig að ég veit ekkert hvernig þetta fer allt saman.  Því ferlið er ekkert skemmtilegt.  Hringur byrjar, það er farið í sónar og athugað hvort það séu einhverjar blöðrur, og ef ekki þá er hægt að fá hormóna.  Og svo aftur á 12 degi er aftur sónar til að athuga hvort að það sé eggja hreyfing, og ef hún er á réttum stað er hægt að fá fleiri hormóna, og svo á 14-16 degi er uppsetning.  En það sem ég skil ekki, ef ég verð ekki ólétt heima, hverjar eru þá líkurnar á því að uppsettning á sæði dugi??  ég bara spyr?

En alla vega ég verð að halda áfram að gera það sem ég er að gera.  Elda og gera allt klárt fyrir kvöldið.  24 manneskjur í mat, gaman gaman.  Gera hreint og jólalegt.

Knús og kossar.

» 0 hafa sagt sína skoðun

14.11.2009 03:05:18 / zz-top

anda inn og út, og taka svo lífinu rólega

Alltaf mikið að gera á litlu heimili :lol:
En alla vega þá er halloween búið, það var sofið 20 tímar í þeirri viku. Var það mjög gaman, þess á milli sem ég lærði fyrir próf.  Set inn myndir við tækifæri.

Fingurinir mínir hafa ekkert verið upp á það besta þess vegna hef ég ekkert verið mikið við tölvuna.  sorry.

Og svo kom annað tímabil í hormónameðferð, númer 5. og aldrei þessu vant þá fór fólk aðeins að hugsa þarna, og ákvað að ég myndi ekkert gera heima prófununa í þetta skiptið heldur koma bara aftur í sónar.  Sem ég gerði og vitir menn, það var líf á réttum stað, eggin mín voru tilbúin til að reyna. Þannig að mér var gefin poki með nálum, sprautum og meðali og leiðbeiningum um hvað og hvernig þetta allt saman átti að fara fram.  Já eiginmaðurinn þurfti að sjá um að sprauta mig á laugardagskveldið.  Sem hann gerði og gerð bara vel, fann ekki fyrir neinu.  Og svo kom að mánudeginum ( 5 dagar síðarn ) og þá var tekin línan aftur á sjúkrahúsið til þess að fara í uppsettningu á sæði.  Ég held að það allt saman hafi tekist vel, ég var látin bíða í 15 mín og svo mátti ég fara.  Ég fór beint heim, og setti lappirnar upp í loft og hreifði mig ekkert í 4 klukku tíma, fór ekki heldur á klósettið.  Vildi nú vera alveg viss um að þetta væri nú allt þarna inni og gerði sína heima vinnu.  Þannig að núna er komið af biðtímanum skemmtilega, ég þarf bara að taka lífinu með ró en má gera allt sem ég hef gert áður.

Núna er komin föstudagurr og ég má ekki telja.  Bara bíða rólega og vona það besta.
Hafið það gott þessa helgi og verið góð við hvort annað.

» 3 hafa sagt sína skoðun

21.10.2009 04:48:23 / zz-top

alveg yndislega fallegt......

http://www.youtube.com/watch?v=frUDrWdBoTc&feature=player_embedded



því miður kann ég ekki að setja inn youtube video hérna inn.  En ef þið nennið þá endilega hlustið á þetta.  Gama og alveg ofboðslega falleg lag sem var endurútgefið og er núna á youtube.

» 0 hafa sagt sína skoðun

14.10.2009 02:51:25 / zz-top

alveg mánuði seinna.....

ég held að það sé komin tími á annað blogg.  Ég er hérna en þá, og líka á facebookin, en held áfram að skrifa hérna.  Finnst það bara gaman.
Nú látum okkur sjá.  Hvað er það helsta í fréttum.  Eiginlega ekki neitt, er komin aftur í skólan.  Fékk fullt starf loksins á vinnustaðnum mínum, þó svo að ég sé búin að vera gera það starf í einhverja mánuði.  Að vera komin á fætur 02:30 og vera í vinnunni til hádegis, þá í ræktina og svo út að labba með hundana og svo í skólan til 22:00 getur stundum verið svolítið strembið, en ég get þetta eins og allt annað.  Ekki satt!

Nú af barneignum þá er þetta helsta í fréttum að, það var 4 hormónameðferðin tekin núna í síðasta hring, og þvi miður aftur neikvætt, engin jákvæð svörun við egglosi, því það er alltaf að gerast vinstra megin þar sem ég er ekki með leiðaran.  Þannig að ég fer núna bara á stúfana að finna bestu ættleiðingarstofuna til að geta gert þetta að veruleika þegar ég fer héðan.  Eða svona næstum því. Og ég ætla mér líka að finna stað til að fjármagna þetta allt saman.  Ég meina þetta eru rúmlega 2 millur.   Ég verð alla vega með allt nokkurn veginn á hreinu eða ég vona það, þegar af því kemur að við þurfum að fara héðan.  Og það getur verið þess vegna einhverstaðar á tímabilinu 3-6 mánuðir eða bara á næsta ári í nóv eins og skilan er, en svona er þetta bara stundum í hernum, allt getur breyst á einum degi eða svo.  Hjá mér skiptir liturinn engu máli, og hefur aldrei gert.  Því ég á alveg heilan helling af ást,öryggi,þolinmæði og skilningsríki handa því.  Allt annað kemur svo bara þegar á því þarf.

Við hjónakornin förum annan hvern laugardag að spila gólf og förum við venjulega 18 holur, ég er nú engin snillingur en get þetta svona allt í lagi.  Hinn laugardaginn erum við venjulega með pókerkvöld, sem getur dregist allt undir morgun.

M'er finnst íslenskan mín eitthvað svo bjöguð???

En núna þarf ég að ná í póstinn og fara að elda kvöldmat, því í kvöld er enginn skóli og vonandi fæ ég einhvern tíma með eiginmanninum.
En alla vega knús og kossar.

» 0 hafa sagt sína skoðun

14.09.2009 22:56:43 / zz-top

í fréttum er þetta helst...

Eins og flestir örugglega vita núna, þá varð ekkert úr uppsettningu að þessu sinni, þar sem ég var / eða er með blöðru á eggjarstokknum og því miður engir hormónar þá.  En ég þar nú víst samt að koma í næsta hring og þá aftur í sónar til að athuga hvað er í gangi.  Við höfum tíma þangað til að eiginmaðurinn fer aftur í skóla des/jan.  Og ef ekkert hefur gerst þá, og við ekki orðin ólétt þá verður rætt betur um hvað við gerum á næsta stað.  Því við þurfum örugglega að flytja um leið og eiginmaðurinn er búin í skólanum, eða ég að flytja okkur þangað sem við þurfum að búa.  Og ætlum við þá að sjá hvort við höfum fundið 15.000 þúsund dollara einhverstaðar á víðavangi til að borga fyrir ættleiðingu.  En ég læt nú vita betur um þetta síðar.  Málið er tekið af dagskrá.

Annars er allt gott að frétta héðan, við höfum það gott og njótum tíman saman.  Skólinn og vinnan er að taka alveg helling frá mér, getur stundum verið erfitt að vinna 40 tíma á viku og svo vera í fullum skóla, það er ekki mikill svefntími á þessu heimili :$

En annars sakna ég ykkar alveg rosalega og langar svolítið mikið heim eða fá einhvern í heimsókn.  Þannig að það er best að snúa sér aftur af enskunni og hætta lesa mbl.is þetta hjálpar ekkert. 

Verð að hætta núna er svöng.
knús og kossar.

» 0 hafa sagt sína skoðun

01.09.2009 01:31:22 / zz-top

þakka ykkur fyrir......

að svara fyrirspurn minni.
Ekki að ég vissi ekki svarið sjálf fyrir, þá er alltaf betra að spyrja.  Ekkert leiðinlegra en að lenda í einhverri leiðinlegri uppákomu.  Nei takk ekki fyrir mig.
Við erum komin með þetta í gang, en erum alveg á fullu að skoða okkar möguleika og síðan verðum við bara að velja og hafna.  Þegar hlutirnir kosta um 2 millur þá er því miður ekki annað hægt.  Nema þið vitið um eitthvað betra eða betri leið??

Annars höfum við það gott og erum bæði alveg á fullu að læra, ég fyrir minn skóla og eiginmaðurinn fyrir 1 class prófið.  Allt annað kemur í ljós síðar.
knús og kossar á línuna handa þeim sem vilja.

» 2 hafa sagt sína skoðun

18.08.2009 00:04:35 / zz-top

spurning fyrir vinir, fjölskyldu og alla hina sem þekkja mig??

Eftir að hafa talað við nágranna konuna mína sem er nýbúin að ganga í gengum ættleiðingarferlið.  Ef ég einhvern tíman mun ganga í gegnum það, þá hef ég spurningu handa fólkinu mínu. 

Skiptir það einhverju máli hver hörundsliturinn er? 

Þetta er víst ein af spurningum sem skipta máli í þessu ferli.  Munu vinir og ættingjar eitthvað setja það fyrir sig ef hörundsliturinn er einhver annar en þinn sjálfur?? 
fyrir mig sjálfa þá skiptir það engu máli, alveg sama hvar í heiminum ég verð, meira segja íslandi.

» 6 hafa sagt sína skoðun

12.08.2009 01:07:10 / zz-top

ég er hætt, hætt, hætt og hætt....

eða alveg búin á því, og alveg að gefast upp á þessu.
Það verður ekkert jákvætt svar í þessum mánuði þar sem ég er með egglos þeim megin sem ég hélt að ég væri ekki með neitt, en jú ég er með eggjabú en engan leiðara??? hvernig sem það allt saman gengur.  Og er þetta 2 mánuðurinn í röð sem það gerist og ekki verð ég ólétt á meðan, helvítans helvítis.  Ég er orðin svo þreytt á þessu öllu saman, að gera sér ekki vonir, vona og bíða, sjá svo til og láta pota í sig og mæla, éta hormóna og verða síðan algjörlega taugahrúga þar sem tilfinningarnar fara alveg á kaf, að vera í þessum rússíbana er bara ekkert gaman, ég verða að fara úr honum.  Ég er orðin þreytt á að heyra þetta kemur, þú ert næst og svoleiðis, eða þegar guð lofar.  Já hættum nú alveg, hver er eiginlega tilgangurinn í þessu öllu saman? ég bara spyr og ekki er nú margt um svör.  

Ég veit ekki hvort ég eigi til bjartsýni ? 

» 3 hafa sagt sína skoðun

10.08.2009 02:58:51 / zz-top

allt er þegar 3 er, er það ekki?

jæja þá er komið af okkar 3 tilraun. 
ER búin að vera eta hormóna núna síðustu daga og á að fara aftur til læknis á þriðjudaginn í sónar til að sjá hvað hormónarnir hafa verið að gera??? því síðast þá fékk ég aldrei jákvæða svörun eftir þá svo að það þarf að athuga hvað er í gangi, vonum það besta bara.  En audda þarf eiginmaðurinn að vera hjá lækni á miðvikudaginn þegar ég verð örugglega með jákvæða prufu og ekki getur hann verið á tveimur stöðum á sama tíma.

Annars er allt gott að frétta af okkur.  Það eru miðpróf í þessari viku, þannig að ég verð alveg ótrúlega mikið upptekin, en verð þó að halda áfram í ræktinni, mér er loksins farið að ganga vel og 6 pund farin.

Ég þarf að fara setja inn eitthvað af myndum, ég hlýt að eiga eitthvað af þeim.  En kanksi ekki af mér, þar sem ég er alltaf að taka myndirnar.

En núna er sunnudagur og tími fjölskyldunar.  Knús og kossar.

» 0 hafa sagt sína skoðun

01.08.2009 00:10:22 / zz-top

Nýjustu upplýsingarnar og smá púst.....

Jæja þá er þetta helsta í fréttum.

Ég ætti að vera lesa undir próf en ég er andlaus.

Síðustu 2 og hálfa viku höfum við verið að passa 2 hunda og hefur ýmislegt gegnið á.  Eru þau búin að naga 2 pör af skóm sem eiginmaðurinn á, 2 pör sem ég á,og brjósta púðan góða, buh buh grátur á þessum bæ.  Er ég búin að keyra þeim heim og geta þau nagað það sem þau vilja á meðan þau bíða eftir að foreldrarnir koma heim einhvern tíman í dag.

'I þessum hring fékk ég engin jákvæð svörun gagnvart egglosi, en er þó búin að vera drepast í brjóstonum í 2 vikur og ekki byrjaði ég heldur á túr.  Búin að fara í blóðprufu og niðurstaðan neikvæð, á að prufa aftur eftir 2 vikur ef ekkert gerist.  hahahha svakalega getur þetta verið fyndið, ég er örugglega bara komin á breytingar skeiðið, hvað geri ég þá??

White trash partý i götunni í kvöld, veit ekki en þá hvort ég fari eða geri hvað? þarf að klára að lesa fyrir prófið á morgun, en get einhvern vegin ekki fest hugan við þetta.  Vinnan gegnur vel, þó svo að ég sé ferlega þreytt þegar ég kem heim og vill helst taka lúr, en þá get ég ekki sofnað á kvöldin, erfitt þetta líf stundum.  En alla vega við höfum það gott erum hamingjusöm og sátt við okkar, eða svona næstum því.  Núna þarf ég bara að vinna í lottó svo að ég geti boðið fjölskyldunni í heimsókn eða komið sjálf til íslands og kanski bara ættleitt.  Ekkert ódýrt í dag.

knús og kossar og góða verslunarmannahelgi.

» 0 hafa sagt sína skoðun

18.07.2009 17:29:15 / zz-top

neikvætt, neikvætt aftur og aftur.

Ég er ekki alveg að skilja þetta, ef þú ert með reglulegan tíðarhring þá áttu að vera frjó á bilinu 12-14 dag frá fyrsta dag tíðarhrings, en það er ekkert svoleiðis í gangi hjá mér, búin að vera pissa á prik síðan 11 dag og alltaf neikvætt, þannig að núna ætla ég að pissa á prik á hverjum degi, strax og ég get það eftir næsta tíðarhing, sem er í kringum 5 dag en ekki byrja á 11 degi, því einhvern vegin held ég að ég sé ekki regluleg, né venjuleg :-) en það er nú ekkert nýtt.

En að einhverju öðru, já draga andan út og svo inn aftur.  Anda svo rólega.  Á maður ekki að gera slökunaraðferðir svona annars lagið svo að stress taki ekki alveg tökin á manni og ekkert verður hægt að gera.  Héðan er allt gott að frétta, við höfum það gott bæði twö og hundar líka.  Við erum í augnablikinu að passa 2 hunda og þetta er alveg full vinna við þetta.  Og þessir tveir eru því miður ekki mikið aldnir upp eða þeir eru bara svona dume.  Skólinn er byrjaður á fullu og en sem komið er líkar mér vel við sociality, bókin góð og kanski aðeins og mikið að blaðri í kennaranum en það er allt í lagi.  Sálfræði er fróðlegt, en bókin er bara hundleiðinleg, alveg lætur mig sofan þegar ég byrja að lesa hana.  Ég verð að finna eitthvað við því. 

En jæja best að bursta tennur og fara í skólan.  Og svo slappa af í einn og næstum því hálfan dag.  Knús á ykkur.

» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 30
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1016 dögum
Hef verið reyklaus.....
Fer heim.
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 713 dögum
Aftur á Hawaii
flutti ég til ameríku.
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1032 dögum
búin að búa í ameríku.
Klukkan